Grunnskólinn í Hveragerði
Grunnskólinn í Hveragerði - Skólamörk 6 - 810 Hveragerði     sími 483-4350    símbréf 483-5060      netfang grunnskoli@hveragerdi.is

Innkaupalistar fyrir skólaárið 2010 - 2011

eru undir hagnýtar upplýsingar.

Skólaslit júni 2010


Fimmtudaginn 3. júni eru skólaslit hjá yngsta stigi 1. – 4. bekkur, klukkan 9:00 og fara þau fram á sal skólans en síðan fara nemendur inn í stofur með umsjónarkennurum sínum.
Klukkan 10:00

Fimmtudaginn 3. júni eru skólaslit hjá miðstigi, 5. -  7. bekk klukkan 10:00 og fara þau fram á sal skólans en síðan fara nemendur inn í stofur með umsjónarkennurum sínum.

Fimmtudaginn 3. júni eru skólaslit hjá 8. og 9. bekk klukkan 10:00. Nemendur fara beint í stofurnar sínar og hitta umsjónarkennara sína.

Föstudaginn 4. júní eru skólaslit hjá 10. bekk klukkan 18:00 í kirkjunni.
Að athöfn lokinni er kaffisamsæti í Grunnskólanum í boði foreldra og nemenda í 9. bekk.

Kveðja,
Stjórnendur og kennarar við Grunnskólann í Hveragerði.

 

Sundlaugin Laugaskarði

Sundlaugin Laugaskarði verður lokuð frá og með 3. maí n.k.
Sundtímar nemenda verða nýttir til íþróttaiðkunar úti fram til vors frá og með mánudeginum 3. maí næstkomandi.
Stjórnendur.

 

Stærðfræðikeppni Suðurlands

Úrslit í Stærðfræðikeppni Suðurlands voru kunngerð á Skólaskrifstofunni í dag. Eins og flestir vita, áttum við tvo keppendur í vinningssæti.


Karolína Ursula Guðnason í 8. bekk sigraði í sínum árgangi og er fyrsti handhafi nýs bikars frá Kjörís, en gamli bikarinn var orðinn fullskrifaður þetta árið. Gaman að nýi bikarinn skyldi lenda hjá heimamanni í fyrstu atrennu.


Eyþór Heimisson í 10. bekk varð í þriðja sæti í sínum árgangi. Þess má geta að sá sem varð í öðru sæti fékk 96 stig af 100 mögulegum og sigurvegarinn fékk 100 stig.
Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin voru peningaverðlaun frá Íslandsbanka og verðlaun frá Árvirkjanum auk bikara fyrir efstu sætin.
Við óskum Karolínu og Eyþóri innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Þau eru verðugir stærðfræðingar.
Grunnskólinn í Hveragerði dekkaði því tvö af níu verðlaunasætum í þessari keppni.
Bestu, Sigurður

5.Ö í útistofunni

Nemendur í Útistofu  

5.Ö vann verkefni um fugla hjá Auðbjörgu Jónsdóttur kennaranema. Byrjað var á því að búa til fóðurkransa sem hengdir voru  upp í lystigarðinum og svo athugað hvaða fugla við sæjum og hvort þeir ætu af krönsunum. Við sáum m.a. þresti, hrafna, dúfur og endur sem við gáfum brauð. Við bjuggum líka til mjög fallegar vinnumöppur og unnum ýmis konar verkefni um fugla. Síðasta daginn sem Auðbjörg var með okkur fórum við í útistofuna undir Hamrinum og bökuðum brauð á greinum og grilluðum sykurpúða. Ása Pálsdóttir  

Stóra upplestrarkeppnin

Frá vinstri Viktoria, Elva, Erla, Sólveig og Kristín

Mánudaginn 15. mars 2010 kepptu nemendur úr Vallaskóla, Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkeyri, Grunnskólanum í Hveragerði og Sunnulækjarskóla á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin var á Stað á Eyrarbakka. 

Að venju var dagskráin fjölbreytt.  Keppendur lásu í þremur hlutum; 1. hlutinn var lestur hluta úr sögu Ármanns Kr Einarssonar Undraflugvélinni, 2. hlutinn var lestur ljóða Þorsteins frá Hamri og í 3. hlutanum lásu keppendur sjálfvalið ljóð. Auk þess fluttu nemendur Tónlistarskóla Árnesinga fjölbreytt tónlistaratriði.
Erla Lind Guðmundsdóttir nemandi í 7.Ö varð í þriðja sæti af ellefu keppendum.

Viktoría Sif
deildarstjóri miðstigs

 

Sigurður Skúlason leikari í heimsókn


Þann 5. mars fengum við góðan gest til okkar. Það var Sigurður Skúlason leikari sem dvelur nú í listamannahúsinu hér í Hveragerði. Hann las upp úr ýmsum bókum fyrir nemendur sem kunnu vel að meta lesturinn. Það er skemmtileg tilbreytni að fá heimsóknir af þessu tagi og gott fyrir nemendur að hlusta á sögur og ljóð.

 

Ferð starfsmanna í Íslenska Gámafélagið 12. febrúar.


Í Grunnskólanum höfum við undanfarið verið að innleiða sorpflokkun. Flokkunin er samskonar og sú sem fram fer á flestum heimilum í bænum. Við höfum fengið fulltrúa frá Íslenska Gámafélaginu í heimsókn til að fræða bæði nemendur og starfsfólkÍ tilefni af því bauð Íslenska Gámafélagið hópi starfsmanna  í kynnisferð í Íslenska Gámafélagið. Starfsfólk þáði veitingar og fékk að því búnu kynnisferð um svæðið. Kynningin var mjög fróðleg og allir sammála um að þarna er unnið mjög merkilegt starf. Það sem vakti einna mesta athygli var að skoða hvernig bensínbifreiðum er breytt í tvíorkubifreiðar með bæði bensíni og metani. Einnig fengum við að sjá hvernig matarolía er unnin þannig að hægt sé að setja hana á bifreiðar.  

100 daga hátíð í 2. bekk

Föstudaginn 12. febrúar var haldin hundraðdagahátíð í 2. Bekk. Síðast liðna viku hafa nemendur komið með eitthvað sem telur hundrað að heiman til að hafa í stofunni. Á föstudeginum var svo sjálf hátíðin. Bekkjunum var skipt upp í hópa og ýmiskonar verkefni lögð fyrir hópana. Má þar nefna að hjálpast að við að klippa 100 brosandi andlit út úr blöðum og líma á stórt karton, búa til 100 daga kórónu, teikna sig 100 ára, skipta til dæmis 100 Cheerioos hringjum í tugi og svona má lengi telja.  Rúsínan í pylsuendanum var svo poppkornsskálin sem öllum stóð til boða í lok skóladagsins.   

Skólahreysti

Nú á fimmtudaginn  25. febrúar verður  skólahreystikeppni grunnskólanna haldin í íþróttahúsinu Austurbergi í Reykjavík. Fjórir öflugir nemendur munu keppa fyrir hönd skólans en það eru þau: Árni Rúnar sem keppir í upphýfingum og dýfum.   Jamie keppir í armbeygjum og hreystigreip og  þau Rakel Rós og Þórir sem keppa í hraðaþraut.   Flott stuðningsmannalið mun svo fylgja þeim á keppnina og hvetja þau áfram.   Sjónvarpsþættir um keppnina verða svo á dagsskrá hjá Rúv eftir miðjan mars.

Sjá fréttir um Öskudagsdagskrá

undir fréttir, hér fyrir ofan.

Vinabekkir og flokkun á sorpi.


 Í lok janúar fóru nemendur úr 10. bekk og heimsóttu vini sína í 1. bekk. Heimsóknin var liður í vinahópaverkefninu, en markmiðið með því  verkefni er meðal annars  að tengja nemendur betur saman og auka samkennd þeirra. Tilefnið var að fræða þau um flokkun á rusli, en hér í skólanum er verið að innleiða slíka flokkun. Tíundubekkingar fóru nákvæmlega í gegnum allt ferlið og nemendur í  1. bekk hlustuðu andaktugir á vini sína og sýndu verkefninu mikinn áhuga. Í lokin fóru allir saman í gönguferð í mötuneytið til að sjá flokkunina þar og svo var farið á nýja ruslaplanið þar sem hægt var að sjá hvert ruslið fer. Á myndunum má sjá nemendur í 10. bekk ræða við vini sína í 1. bekk.

 

 

 



 



 

 

 



 

Skóladagatal fyrir skólaárið 2010-2011 er á nýrri heimasíðu skólans grunnskoli.hvergerdi.is (Hún er enn i vinnslu.)

Sófasmíði

Í vetur hefur verið kennt val sem nefnist “útistofa”.
Vegna leiðindaveðurs og frosts í jörðu hefur lítið verið hægt að smíða úti.
Því ákváðu nemendurnir sem voru í valinu, í samráði við kennara sína og skólastjóra að smíða sófa í setustofu skólans sem unglingstigið hefur aðgang að.
Sófarnir heppnuðust með prýði og held ég að allir séu ánægðir með það.
Þeir sem smíðuðu sófana voru. Eggert Helgason, Gísli Þorvaldsson, Hafsteinn Davíðsson, Jón Agnar Jóhannsson, Guðjón Árnason og Magnús Gíslason húsvörður.
Vonast hópurinn til þess að sófarnir muni nýtast bæði nemendum og skólanum um ókomna framtíð.

Hafsteinn Davíðsson
formaður nemendaráðs GíH

Græna framtíðin


Nú eru hefðbundin vorverk hafin í Grunnskólanum. Nemendur á yngsta stigi fara í gróðurhús upp að Reykjum til að sá fræjum í bakka. Þegar fræin eru tilbúin til priklunar fara nemendur með umsjónarkennurum sínum aftur í gróðurhúsin og prikla í potta sem þau taka svo með sér heim í vor þegar skóla lýkur. Á meðan plönturnar eru að stækka fara nemendur í gönguferðir í gróðurhúsin til að fylgjast með vextinum. Þessar gróðursetningarferðir eru hluti af samstarfsverkefni Grunnskólans og Landbúnaðarháskólans á Reykjum. Samstarf þessarra tveggja skóla hefur staðið undanfarin ár og er tilhlökkunarefni á hverju vori þar sem gróðursetningin er öruggt merki um komu vorsins.  

 

Árshátíð miðstigs  11. mars 2010

Frá árshátíð miðstigs

Fimmtudaginn 11. mars síðastliðinn var haldin árshátíð miðstigs.
Þema hátíðarinnar var að þessu sinni álfar og tröll.
Mikið var um dýrðir og sýndu nemendur frumsamda leikþætti vð góðan orðstír.
Að lokinni dagskrá á sviði var gengið að drekkhlöðnu veisluborði þar sem allir fengu eitthvað við sitt hæfi.
Að lokum var stiginn dans undir tónlist plötusnúða úr 10. bekk.

Viktoría Sif
deildarstjóri miðstigs.

Vinirnir í 1. og 5. bekk.

Hér má sjá mynd af árshátíðaratriðunum sem 5. bekkingar sýndu vinum sínum í 1. bekk.


Sýningin var liður í vinabekkjaverkefninu í skólanum. Börnunum í 1. bekk fannst mikið til koma og skemmtu sér mjög vel. Það var gaman að heyra þegar þau bentu hvert öðru á vini sína á sviðinu. Vinahópaverkefnið er liður í að gera góðan skólabrag betri.
Bestu kveðjur
Erna Ing 

 

Café Solstråle

 

Fimmtudaginn 18. febrúar opnuðu nemendur 10. bekkjar danskt kaffihús í mötuneyti skólans. Kaffihúsið var að vísu einungis opið í eina kennslustund, en það var liður í dönskukennslu bekkjanna. Nemendur höfðu útbúið matseðla á dönsku, lesefni fyrir gesti auk þess sem þeir höfðu bakað dýrindis krásir (eftir dönskum uppskriftum að sjálfsögðu) sem boðið var upp á við opnunina. Stjórnendum skólans og nokkrum vel völdum starfsmönnum var boðið upp á fastelavnsvafler með fløde, æbleskiver og fleira danskt góðgæti og heita og kalda drykki með. Þjónar sem og gestir kaffihússins töluðu dönsku og dönsk tónlist hljómaði í bakgrunni. Veggir kaffihússins, sem hlaut nafnið Café Solstråle, voru skreyttir dönskættuðu myndefni sem krakkarnir útbjuggu af miklum myndarskap. Skemmtileg stemmning myndaðist þennan stutta tíma sem kaffihúsið var opið og geta nemendur og starfsfólk ekki beðið eftir því að það opni á ný.

Tónlist fyrir alla


Föstudaginn 29. janúar komu til okkar frábærir tónlistarmenn. Það var jazzkvartett Reykjavíkur með Sigurð Flosason fremstan í flokki. Þeir spiluðu ýmis lög og útskýrðu á einfaldan hátt muninn á jazz og annarri tónlist. Þeir leyfðu okkur að heyra muninn á því hvernig „Siggi var úti“ er spilaður t.d. í Írlandi og á Spáni og fleiri löndum. Sigurður gekk spilandi um salinn með saxófóninn og vakti það mikla ánægju áheyrenda sem kíktu forvitnir ofan í hljóðfærið. Óhætt er að segja að allir nemendur hafi skemmt sér hið besta og verið foreldrum sínum og kennurum til sóma. Tónlist fyrir alla er ómissandi þáttur í skólastarfinu og alltaf tilhlökkunarefni þegar von er á þeirri heimsókn.

Upplýsingar um opnunar -tíma skrifstofu skólans

Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga er opið frá kl. 7:30 til kl. 16:00. Þriðjudaga er opið frá kl. 7:30 til kl. 15:30. Föstudaga er opið frá kl. 7:30 til kl. 13:00.

Vasaljósafriðarganga


Fimmtudagsmorguninn 10. desember fóru allir nemendur ásamt starfsfólki í vasaljósafriðargöngu. Lagt var af stað kl. 8:20 og gengið upp sundlaugarbrekkuna að Reykjum og þaðan í átt að Ölfusborgum. Genginn var góður hringur og komið heim í skóla um það bil 40 mínútum seinna.Veðrið var milt og myrkrið svart og því komu vasaljósin í góðar þarfir. Í ár breyttum við skipulagi göngunnar á þann veg að nú var nemendum raðað niður í vinahópa sem gengu saman.  Þetta fyrirkomulag reyndist afar vel og gangan var sérstaklega ánægjuleg.  Þegar horft var til baka við göngubrúna við NLFÍ var eins og jólasveinarnir væru búnir að setja jólaseríu utan í Reykjafjall. Vasaljósafriðargangan er orðin ein af ómissandi hefðunum okkar í Grunnskólanum.

Skáld í skólum

Miðvikudaginn  11. nóvember fengu nemendur á yngsta stigi góða gesti. Það voru þau Iðunn Steinsdóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Þau lásu sögur og ljóð upp úr bókum sem þau hafa samið. Þar heyrðum við skemmtilegar sögur af ömmustráknum hennar Iðunnar og Aðalsteinn Ásberg kenndi  okkur söng um hvað það er gott að borða nammi. Nemendur sátu og hlustuðu af athygli og tóku svo vel undir sönginn með Aðalsteini. Allir virtust skemmta sér hið besta.  Þegar upplestrinum lauk var sameiginleg söngstund hjá yngsta stigi þar sem 2. bekkur sá um forsöng.

Leikskólabörn í heimsókn í 1. bekk.

Allir einbeittir við námið


2. og 3. nóvember komu börnin í skólahóp á leikskóla í heimsókn í 1. bekkinn.
Það voru unnin skólaverkefni og endað á því að setjast í krókinn og syngja saman nokkur lög. Það var fagnaðarfundur hjá börnunum og rifjaður upp vinskapur frá leikskólanum. Næst koma leikskólabörnin í heimsókn þegar við bjóðum þeim að taka þátt í gangasöng með okkur í desember.

Frá skólaselinu


Þann 30. október var fræðsluerindi fyrir allt starfsfólk Grunnskólans í Hveragerði um einhverfu.
Til að sem flestir starfsmenn  gætu setið fyrirlesturinn sáu Guðjón skólastjóri og Ernurnar um að vera með börnunum á skólaselinu. Gítarinn var tekinn fram og sungið af miklum krafti. Allir skemmtu sér vel og börnin tóku vel á móti nýju starfsfólki.

 

 

 

 

 

   
Teljari

þegnar.

 

Félagsmiðstöðin Skjálftaskjól

Bæjarbókasafn Hveragerðis

Áhugaverður vefur um lestur

10 netheilræði


OLWEUS

Grænfáninn

 

Skólabílar fara frá Fljótsmörk 12:40 og 15:30
Vestursveit sími: 895-0119
Austursveit sími: 866-5902

Sjá fleiri leirkvikmyndir hér
Skíðaferðin

Töltmót kvenna

Dýragarðurinn

Dag einn í Afríku




 


Jan Hinrik Agnes Ósk